Description: Bríó var fyrsti bjórinn frá Borg Brugghúsi. Bríó er svokallaður pilsner-bjór en ólíkt því sem margir Íslendingar halda er pilsner ekki léttöl, heldur ljós lagerbjór frá borginni Pilsen í Bæheimi (í vestanverðu Tékklandi). Þessi bjórstíll leit fyrst dagsins ljós á miðri 19. öld og varð svo vinsæll, að megnið af þeim bjór sem drukkinn er í dag er á einn eða annan hátt byggður á þessum stíl. Notað er þýskt humlayrki, Mittelfrüh frá Hallertau í Bava